Klúbburinn styrkir Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins vegna námskeiðshalds fyrir konur sem hafa fengið krabbamein og ungmenni sem hafa misst aðstandendur úr krabbameini.
Mæður með geðheilsuvanda
Styrktarverkefni klúbbsins er unnið í samstarfi við Miðstöð foreldra og barna. Verkefnið felst í að kosta hópmeðferð fyrir verðandi mæður með geðheilsuvanda og eftirfylgd við þær og börn þeirra eftir fæðingu.