Skip to main content
Stjórn klúbbsins

Aðalfundur janúar 2023

Þann 11. janúar2023 var haldinn aðalfundur og ný stjórn boðin velkomin og önnur kvödd.

Stjórnina skipa: Ingibjörg Jónasdóttir formaður, Ingibjörg Hrund Þráinsdóttir varaformaður, Erla Gísladóttir ritari og Kristbjörg Ásta Ingvadóttir gjaldkeri. Verkefnastjóri er Júlíana Erlendsdóttir og aðstoðarverkefnastjóri Kristín Norðfjörð.
Fulltrúar eru Jóhanna Friðriksdóttir og Vigdís Pálsdóttir.

Fyrir utan aðalfundarstörf kom til okkar góður gestur Heiða Kristín Harðardóttir, náms- og starfsráðgjafi, frá Fjölsmiðjunni og sagði okkur frá starfsemi hennar. Umfjöllunarefni fellur undir flokkinn Menntun og sjálfbærni.

Skólastyrkur frá SIE

Þeódóra Thoroddsen, dóttir Ragnhildar Bragadóttur sem er systir í Bakka- og Seljaklúbbi, hlaut 2020 veglegan skólastyrk frá SIE. Þeódóra er í doktorsnámi við Oxford háskóla. Niðurstöður úr fyrri verkum hennar hafa verið gefnar út og hefur Þeódóra hlotið viðurkenningar og styrki fyrir.

Aðrir styrkþegar eru Renata Emilsson Peskova, sem Reykjavíkurklúbbur mælti með, auk fleiri kvenna frá fjölmörgum löndum. Áhugavert er að lesa yfirlitið yfir hvað þær leggja stund á. Bakka- og Seljaklúbbur sendir Þeódóru og öðrum styrkþegum hamingjuóskir og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Nánar má lesa um styrkveitinguna á vef SIE með því að smella á eftirfarandi hlekk:

http://www.soroptimisteurope.org/sie-scholarship-grants-2020-2021/?fbclid=IwAR2u1JyoF2KtG3sQ5WuvHz74H-bu7LAMY8RUkd6IfUzdirXv8HYlIbRv-b4

Júní 2020

Kaffisamsæti til heiðurs Guggu okkar

70182878 10222166494818295 4247237693806739456 o

Það var fríður hópur Bakka- og Seljasystra sem mætti á Kjarvalsstaði í kaffisamsætið með henni Guggu okkar þann 17. september 2019.

Styrkur til nýbyggingar Kvennaathvarfsins

Kvennaathvarf

Þann 11. september 2019 afhenti Kristín Norðfjörð, verkefnastjóri hjá Bakka- og Seljaklúbbi, Kvennaathvarfinu styrk frá klúbbnum að upphæð tveggja milljóna króna sem ætlaður er nýbyggingu Kvennaathvarfsins.  Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra,  og Elín Jónsdóttir, stjórnarkona, veittu styrknum viðtöku fyrir hönd Kvennaathvarfsins.  Sigþrúður þakkaði styrkinn og veitti systrum dýrmæta innsýn í starf Kvennaathvarfsins með áhugaverðu erindi. 

Lundurinn í Heiðmörk í umsjá Bakka- og Seljaklúbbsins næstu tvö árin

68360824 10221823676528052 4516965630020157440 o

Bakka- og Seljaklúbbur tók að sér í vor að sjá um lundinn í Heiðmörk næstu tvö árin.  Það var vaskur hópur klúbbsystra ásamt mökum sem tóku til hendinni þann 8. ágúst síðastliðinn.  Lúpína og gras var slegið, hríslur grysjaðar ásamt því að nestisborðið var lagfært og málað.