Skip to main content
Alzheimerkaffi

Aðalfundur 2025

Aðalfundur Árbæjarklúbbs var haldinn mánudaginn 13. janúar. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var ný systir, Jóhanna Ósk Breiðdal, tekin inn í klúbbinn og við bjóðum hana hjartanlega velkomna.

jan01

 

jan02jan03

 

Rannveig Þorvaldsdóttir skráði

Jólafundur 2024

hopMánudaginn 9. desember 2024 var jólafundur Soroptimistaklúbbs Árbæjar haldinn á Hótel Holti. Fundurinn hófst með skoðunarferð um hótelið, þar sem systur fengu tækifæri til að skoða einstök listaverk í eigu hótelsins. Nemendur úr Árbæjarskóla  fluttu n0okkur jólalög, sem settu hátíðlegan tón fyrir kvöldið. Framreiddur var ljúffengur jólahátíðarmatur. Á fundinum fór fram inntaka nýrrar systur, Helgu Kristjánsdóttur. Guðný Hinriksdóttir flutti jólaljóð. Systur í GES komu í heimsókn og heilluðu viðstadda með fallegum jólalögum, ásamt því að fá allar systur með í söng. Guðrún Helga Bjarnadóttir las jólaljóð eftir eiginmann sinn, Kristján Björnsson sem nefnist Aðventa 2024. Samöngur var í lokin og jólapakkaleikur sem skemmtinefndin hafði skipulagt. Kvöldið var notaleg samvera í fallegu umhverfi og hátíðlegri stemningu. Fleiri myndir eru að finna á Facebook síðu Soroptimistasambands Íslands

Gleðilega hátíð 

hop2

 

 

Frétt skráði Rannveig Þorvaldsdóttir

 

 

nóvember 2024

nov

Á nóvember fundinum afhentum við minningargjöf  til Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Kær systir okkar, Guðrún Kristingsdóttir lést fyrr á árinu og gaf fjölskylda hennar klúbbnum 500.000 krónur í minningu hennar. Ákveðið var að styrkja Menntunarsjóðinn en starfsemi hans er svo mikið í anda Guðrúnar um að valdefla ungar konur og hjálpa þeim til mennta. Fulltrúi sjóðsins veitti gjöfinni viðtöku og sagði okkur stuttlega frá starfseminni í leiðinni. 

nov2

Frétt unnin af Rannveigu Þorvaldsdóttur

október 2024

Á fundi Soroptimistaklúbbs Árbæjar þann 14. október var þema kvöldsins „bleikt“. Hvöttu stjórnarkonur systur til að mæta í einhverju bleiku. Ný systir, Ásta Mósesdóttir, bættist í hópinn og var boðin hjartanlega velkomin. Steinunn Jónsdóttir hélt áhugavert Egó-erindi og þær Katrín Ágústsdóttir og Sigurlaug Kristjánsdóttir urðu heiðursfélagar.

okt

Frétt skráð af Rannveigu Þorvaldsdóttur

júní 2024

Við áttum góða stund í Heiðmerkurlundinum síðdegis þann 3. júní. Það var heldur betur tekið til hendinni, hreinsað og klippt og snyrt. Vonda veðrið sem hafði verið spáð lét ekki sjá sig, örstutt snjókoma, enginn vindur og mest megnis sól. Afraksturinn var hár bingur af greinum sem skógræktarmenn ætla að sækja fyrir okkur. Vigdís úr Bakka- og Selja klúbbi heimsótti okkur og sagði frá vinnu i lundinum síðustu ár. Einnig gróðursettum við birkitré til minningar um látnar systur okkar 💛💙 Endað var á veitingum og spjalli. Virkilega vel heppnaður fundur.

juni

 

Frétt unnin af Rannveigu Þorvaldsdóttur