September 2023
Árbæjarklúbbur hóf vetrarstarfið í gær. Að venju var dagskráin fjölbreytt en hæst bar að sjálfsögðu inntaka nýrrar systur. Valborg formaður kynnti og bauð Hrafnhildi Björk Baldursdóttur velkomna í klúbbinn. Þær hafa þekkst lengi og við hinar hlökkum að kynnast Hrafnhildi og starfa með henni
Gestur kvöldsins var Hrefna Guðmundsdóttir sem ræddi við okkur um hamingjuna. Klúbburinn var hamingjumældur og kom afar vel út, meðaltalið yfir 8 á 10 skalanum Svo minnti hún okkur á mikilvægi félagslegra tengsla en um leið verðum við líka að muna eftir að hlúa vel að okkur sjálfum Hrefna heldur úti síðunni hamingjuvisir.com þar sem margan fróðleik er að finna.
Þetta var frábær byrjun á vetrarstarfinu. Næst verður vinnustaðafundur og svo er verið að plana fund með öðrum klúbbi síðar á önninni. Alls konar spennandi framundan