Stjórn og embættismenn
Stjórn klúbbsins skipa starfsárið 2024 - 2025:
Margrét Halldórsdóttir, formaður
Ellen Louise Tyler, varaformaður
Rebekka Gylfadóttir, ritari
Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri
Kristín Helga Ólafsdóttir, meðstjórnandi
Rósa Magnúsdóttir, meðstjórnandi
Netfang klúbbsins:
Kópavogsklúbbur var stofnaður 4. júní 1975. Fyrsti formaður var Þorbjörg Kristinsdóttir.
Heiðursfélagar eru 4, Þorbjörg Kristinsdóttir, Hildur Hálfdanardóttir, Sigurborg Einarsdóttir og Margrét Árnadóttir.
Í dag eru 55 systur í klúbbnum, þar af eru 4 í leyfi.
Klúbburinn stofnaði Sunnuhlíðarsamtökin á upphafsárum sínum, sem höfðu það að markmiði að reisa hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Í gegnum tíðina hefur klúbburinn stutt vel við Sunnuhlíð. Einnig hefur klúbburinn lagt mörgum góðum verkefnum lið td. Krísuvíkursamtökunum, greitt laun hjúkrunarfræðings í forvarnarstarfi við MK, gefið gjafir til sambýla fatlaðra, stutt við efnalitlar fjölskyldur, stutt ungt fólk til náms og ýmislegt annað.
Fundað er annan mánudag í mánuði.
Sendu okkur póst: