Skip to main content
  • Menningarhúsið Kópavogi

  • Krakkapottur

  • Kópavogskirkja

  • Golf á Sigló

    Inntaka nýrrar systur

    Ný systir var boðin velkomin í Kópavogsklúbbinn mánudaginn 4. apríl sl. Hún heitir Helga Björg Hallgrímsdóttir. Helga starfar sem fræðslufulltúi hjá Iðan fræðsluseti. Með henni á myndinni era Helga Björk Ragnarsdóttir, meðmælandi og Þóra Guðnadóttir formaður og Margrét Halldórsdóttir varaformaður.

    Helga

    Jólafundur

    Jólafundur var haldin á Catalínu 14. desember sl. Skemmti- og ferðanefnd sá um skemmtidagskrá.  Ninný las sögu fyrir okkur systur í anda jólanna og systir okkar hún Guðrún Lóa sá um söng ásamt dóttir sinni Elfu Dröfn.  Að lokum kom Sólveig Pálsdóttir systur okkar frá Soroptimistaklúbbi Seltjarnarness  og las upp úr nýjustu bók sinni  "Skaði"   

    Í stað þess að vera með pakkaleik lögðu systur í samskotabauk til styrktar góðu málefni og var ákveðið að Dvöl/ samfélagshús nyti þess í þetta sinn.

     

    song

    skald

    Kirkjur í Kópavogi lýstar upp í roðagylltum lit

    Tvær kirkjur í Kópavogi hafa verið lýstar upp í roðagylltum lit til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku  í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. Roðagyllti liturinn er litur átaksins sem táknar bjartari framtíð án ofbeldis gegn konum.Roðagylltar kirkjur í Kópavogi 002

    Ný stjórn tekin við

    Aðalfundur var haldinn í Matarhjallanum, mánudaginn 11. október 2021

    Nýjar systur komu inn í stjórn næsta starfsárið 2021 - 2022. Næsti formaður verður Þóra Guðnadóttir, Margrét Halldórsdóttir varaformaður, Hulda Skúladóttir ritari, Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir gjaldkeri. Á myndinni sést Þóra Guðnadóttir taka við formannskeðjunni af fráfarandi formanni Signýju Þórðardóttur

    stjsk.2

    Septemberfundur

    Á september fundinum kveikti Soroptimistaklúbbur Kópavogs  á kertum á alþjóðlega friðardeginum og fagnaði 100 ára afmæli Alþjóðasambands Soroptimista
    Kertakveikjarar eru Elín Alma Arthúrsdóttir, Margrét Kjartansdóttir, Jónína Magnúsdóttir og Sigurrós Þorgrímsdóttir. Hafdís Karlsdóttir verðandi forseti SIE flytur framtíðarhvatningu Soroptimista: " TOGETHER AS A TEAM".
    242185013 1261067071031787 7445263020251311676 n

    Soroptimistaklúbbur Kópavogs gróðursetur í Lækjarbotnum

    Júnífundur Soroptimistaklúbbs Kópavogs var haldin í Lækjarbotnum þar sem klúbburinn hefur oft haldið sína júnífundi. Klúbburinn hefur verið að rækta upp í  Lækjarbotnum við Selfjall frá 1993. Í ár var klúbbnum úthlutað stærra svæði við Selfjall og var ákveðið í tilefni af 100 ára afmæli Soroptimistahreyfingarinnar að gróðursetja 100 tré , reynivið og birki.

    Soroptimistar um allt land hafa verið að planta trjám í sinni heimabyggð  til að minnast þessara tímamóta. og tengja við kvenréttindadaginn 19. júní, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og að hvatningu Alþjóðasambands Soroptimista undir kjörorðinu; „að velja að vaxa"

    Signý formaður er búin að skrifa grein í Kópavogspóstinn og Kópavogsblaðið til að segja frá þessu framtaki okkar.

     Vaskur hópur systra við gróðursetningu

     Soroptimistaklúbbur hópmynd r1

    Elstu og yngstu soroptimistasysturnar

     Elstu og yngstu gróðursetja 4Selfjall og skálinn 3