Skip to main content

Blómasala

tulip33

Undanfarin ár höfum við í Árbæjarklúbbi verið með blómasölu sem fjáröflun tvisvar sinnum á ári. Við höfum selt gul blóm, túlipana, í aðdraganda páskanna og appelsínugul blóm, nellikur eða rósir, meðan á 16 daga átakinu Roðagyllum heiminn stendur í nóvember. Þetta hefur reynst okkur góð fjáröflun og mikil þátttaka hefur verið í verkefninu. Bæði eru blómin svo falleg og svo er óskaplega gaman að hitta alla þá vini og ættingja sem leggja málefninu lið sem okkur gefst tækifæri til að hitta um leið og blómin eru afhent.