Jólafundur 2019
Fimmtudagskvöldið 5. desember mættu systur ásamt gestum í hátíðarskapi á Löngumýri á jólafund.
Written on .
Fimmtudagskvöldið 5. desember mættu systur ásamt gestum í hátíðarskapi á Löngumýri á jólafund.
Written on .
Alþjóðasamband Soroptimista hefur barist gegn kynbundnu ofbeldi í áratugi og boðar til 16 daga vitundarvakningar gegn ofbeldi 25. nóvember til 10. desember, en Sameinuðu þjóðirnar hafa valið 25. nóvember dag vitundarvakningar um útrýmingu kynbundis ofbeldis og markar hann jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn því. Þessu sérstaka átaki lýkur á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna, 10. desember, sem jafnframt er alþjóðlegur dagur Soroptimista.
Written on .
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar stóð fyrir fræðandi fyrirlestur mánudagskvöldið 2. nóvember með Dr. Erlu Björnsdóttir.
Written on .
Þann 26. október bauð Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar öllum 12 ára stúlkum í firðinum á dags sjálfsstyrkingarnámskeið Stelpur geta allt hjá Kristínu Tómasdóttur. Er þetta í 3 sinn sem klúbburinn býður upp á námskeiðið.
Alls sóttu 11 stúlkur námskeiðið (þessi árgangur er lítill í firðinum og metþáttaka með tilliti til þess) og skemmtu sér vel. Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu er að þekkja hugtakið sjálfsmynd, að þekkja eigin sjálfsmynd og að kynnast leiðum til að hafa jákvæð áhrif á eigin sjálfsmynd.
Eftir námskeiðið var foreldrum boðið til fundar þar sem þau fá góð ráð til að fylgja námskeiðinu eftir heima, til að efla og styrkja dætur sínar.
Soroptimistasystur sáu um allt utanhald eins og áður, stóttu stúlkurnar á námskeiðið, auk þess að bjóða upp á dýrindis súpu í hádeginu, meðlæti í kaffinu og afþreyingu á milli námskeiðshluta.
Mikil ánægja var með verkefnið bæði hjá stúlkum og foreldrum og stefnum við því ótrauðar á að halda verkefninu á lofti á næsta ári.
Written on .
Í blíðskaparveðri á laugardagsmorgni lögðu 3 Skagafjarðarsystur, Herdís, Helga og Lilja, land undir fót og brunuðu af stað á Laugabakka. Framundan var pakkaður dagur af áhugaverði dagskrá ásamt samveru 150 systra víðsvegar af landinu, því var ekki skrýtið að þær voru fullar tilhlökkunar og þögnuðu ekki alla leiðina, eða við skulum gefa okkur að það hafi verið ástæða málflaumsins.
Ingibjörg Landsambandsforseti setti fundinn og viðtók afar fróðlegur dagur og skemmtileg hópavinna sem dýpkar starf okkar systra.
Eftir góða vinnu og mismikla kaffidrykkju slökuðu systur á fyrir væntanlegan kvöldverð og vorum við svo lukkulegar að galleríið Babúska á Hvammstanga var opið fyrir okkur. Það var virkilega skemmtilegt að líta þar inn og fórum við allar ríkari listmunum heim.
Kvöldverðurinn einkenndist af gleði og söng, skemmtiatriðum systra alls staðar af landinu og ljúffengum mat og drykk sem rann ljúflega niður. Þökkum við fyrir dásamlega samveru og systraþel.