Kynning á Alzheimersamtökunum
Febrúarfundurinn þann 8. febrúar 2023 hófst með afar áhugaverðu erindi Vilborgar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Alzheimersamtakanna og Seiglunnar.
Ný systir, Helga Sigurjónsdóttur, var tekin inn í klúbbinn og Vigdís Pálsdóttir var með stutt erindi „Veistu að...?“ og sýndi okkur nokkrar greinar í Fregnum um Heiðmerkurlundinn og dvöl sína með Soroptimistum í Kaliforníu. Síðan voru nokkrar líflegar umræður um mál á döfinni. Umfjöllunarefni erindis fellur undir flokkinn Heilsa og fæðuöryggi.