Námsstyrkur SIE
30. janúar 2017
Á síðasta ári, 2016, hlaut Þóra Hafdís Arnardóttir námsstyrk frá SIE.
Þóra sótti um styrkinn í gegnum Grafarvogsklúbb. Hún stundar masternám í arkitektúr í Barcelóna.
Á myndinni er hún með formanni klúbbsins, Þórunni Kristjánsdóttur. Þóra Hafdís er dóttir Fanneyjar Kristjánsdóttur, klúbbsystur okkar.
Þóra Hafdís mætti á fund hjá okkur og kynnti verkefnin sín sem sjá má á vefsíðu hennar hér að neðan.
Við óskum Þóru Hafdísi til hamingju með styrkinn.
Vefur Þóru
www.thoraha.com