Þú og þinn styrkur v/2022
Námskeiðið "Þú og þinn styrkur" var haldið 28. janúar 2023 í Hlymsdölum. Þátttakendur voru rúmlega 20 stúlkur fæddar árið 2010 úr 4 grunnskólum í Múlaþingi. Leiðbeinendur voru sem fyrr Jónína Kristjánsdóttir, María Kristmundsdóttir og Eygló Daníelsdóttir.
Efni námskeiðsins og uppsetning var með sama sniði og 2021 og má lesa nánari lýsingu á innihaldi og framkvæmd í grein Eyglóar Daníelsdóttur frá námskeiðinu 2021
Hádegisverður og miðdegishressing voru í boði okkar systra og fengum við sendar ljúffengar veitingar frá Bókakaffi.