Afmælishátíð Sigurhæða
Þann 19. mars 2023 var haldin hátíð í tilefni þess að tvö ár voru liðin frá opnun Sigurhæða. Klúbbsystur fjölmenntu ásamt mökum í Risið þar sem afmælið var haldið hátíðlegt, og þangað mættu líka verkefnisstjórn Sigurhæða og bæjarstjórar Árborgar og Hveragerðis, þau Fjóla St. Kristinsdóttir og Geir Sveinsson. Einnig heiðraði Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrsti þingmaður Suðurlandskjördæmis okkur með nærveru sinni ásamt systur sinni, Aldísi Hafsteinsdóttur, sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Á hátíðinni var undirritaður samningur við Árborg um árlegan fastan styrk til næstu þriggja ára. Ragnhildur Gröndal söngkona söng nokkur ljúflingslög við gítarundirleik eiginmanns síns, Guðmundar Péturssonar. Léttar veitingar voru í boði og var það samdóma álit okkar klúbbsystra að vel hefði tekist til við að fagna þessum tímamótum.