Tiltekt við Sigurhæðir
Níu systur og einn eiginmaður mættu í garðinn við Sigurhæðir til að snyrta og taka til í garðinum. Hendur voru látnar standa fram úr ermum og árangurinn kom fljótt í ljós. Eftir vinnu dagsins átti hópurinn svo sannarlega skilið að fá kaffi og gott með því.