AFMÆLISFUNDUR 45 ÁR
Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar er 45 ára í ár.
Af því tilefni var haldinn glæsilegur afmlælisfundur með mökum. Dagurinn sem varð fyrir valinu var laugardagurinn 4. september. Við söfnuðumst í rútu í okkar heimabæ og var haldið á Bessastaði. Þar tók forsetinn á móti okkur og hélt smá tölu. Guðlaug formaður hélt einnig smá tölu og færði Guðna gjöf. Í framhaldi var okkur svo boðið upp á kaffi og pönnsur.
Bessastaðir eru mjög skemmtilegir að heimsækja. Guðni er sérlega hlýr og alþýðlegur, sagði skemmtilegar sögur og tók einstaklega vel á móti okkur.
Húsið er mjög gaman að skoða og mikil saga er á staðnum.
Á myndinni eru frá vinstri eru Guðfinna varaformaður, Guðni forseti og Guðlaug formaður
Að lokinni kaffi með forsetanum var aftur safnast upp í rútu og haldið á veitingastaðinn Satt. Þar var búið að dekka upp sal fyrir okkur og héldu veisluhöldin áfram. Þar borðuðum við góðan mat og gerðum ýmislegt skemmtilegt.
Þrjár systur voru heiðraðar. Þær Hjördís Gissurardóttir, Sólrún Björnsdóttir og Sigurbjörg Sigurðurdóttir bættust í hóp heiðursfélaga. Þær eru allar stofnfélagar klúbbsins okkar og eru núna komnar í góðan félagsskap hennar Salóme Þorkelsdóttur. Hún var heiðursfélagi og er einnig ein af stofnendum klúbbsins.
Frá vinstri er Sigurbjörg, Sólrún, Guðlaug, Hjördís og Guðfinna
Síðan buðum við velkomnar í hópinn þrjár nýjar systur. Við erum svo heppnar að hafa fengið í klúbbinn okkar þær Bertu Þórhallsdóttur, Hafdísi Gunnarsdóttur og Maríu Petu Hagalín Hlöðversdóttur.
Frá vinstri Berta, María, Hafdis Guðlaug og Guðfinna
Við fengum svo til okkar hluta af kórnum Stöllurnar sem sungu fyrir okkur lög úr söngleiknum Ó María. Sú sýning var á dagskár leikfélagsins hérna í Mosó. Fjallar söngleikurinn um Maríu Guðmundsdóttur eina af stofnfélögum klúbbsins en María lést í desember síðastliðnum.
Eftir vel heppnaðan dag var svo safnast aftur í rútuna og haldið heim á leið.