TÆKIFÆRISKORT
Við erum að selja tækifæriskort með þessum fallegu myndum.
Myndina af þessum pattaralega auðnutittlingi tók Sólrún Björnsdóttir systir okkar í Mosfellssveitarklúbbnum en myndina af sólarupprás á Þingvöllum tók Ragnheiður Gyða Ragnarsdóttir, dóttir Ingibjargar Jónsdóttur systur okkar.
Kortin eru 12 x 12 cm og án texta svo hægt er að nota þau við öll tækifæri,
bara skrifa í þau innblásinn texta frá hjartanu.
10 stk kosta 3800 kr
5 stk kosta 2000 kr
1 stk kostar 500 kr
Það fylgja kortunum umslög.