Ný systir tekin inn á desemberfundi
Á desemberfundi okkar var tekin inn ný systir. Hún heitir Anastasiia Hulchenko og er frá Úkraínu. Hún kom til Egilsstaða þegar stríðið í Úkraínu hófst og hefur verið hér síðan. Hún stundar nám í lyfjafræði og starfar í Lyfju á Egilsstöðum auk þess að læra íslensku. Hún er yngsti Soroptimisti á Íslandi, fædd árið 2000.
Með henni á myndinni eru Yvette Lau, meðmælandi og Kristjana Björnsdóttir formaður.