Sögur af konum á Snæfellsnesi
Sögur af konum á Snæfellsnesi
Brot úr formála
Þegar 100 ár voru liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt var ákveðið hér vestur á Snæfellsnesi að líta um öxl og segja sögur nokkurra vel valinna snæfellskra kvenna. Um leið og sagt er frá lífshlaupi þessara kvenna er líka varpað ljósi á sögu mannlífs á Snæfellsnesi.
Soroptimistasystur skipulögðu verkefnið vel, skipuðu sér í hópa og kynntu þær konur sem valdar voru á félagsfundum. Frásögn um eina konu birtist í hverjum mánuði í héraðsfréttablaðinu Jökli. Sýning um konurnar var sett upp í Átthagastofu Snæfellsbæjar sumarið 2015. Það hefur verið gaman og gefandi að rifja upp sögur þeirra kvenna sem ruddu brautina á svo mörgum sviðum.
Vegna fjölmargra áskorana er sögunum hér safnað saman á aðgengilegan hátt.
(lesa má allan formálann og ritið hér)
Fyrir hönd Soroptimistasystra á Snæfellsnesi
Ólafsvík 21. september 2016
Ragnheiður Víglundsdóttir,
Þóra Kristín Magnúsdóttir
og Ragnhildur Sigurðardóttir