Lundurinn í Heiðmörk í umsjá Bakka- og Seljaklúbbsins næstu tvö árin
Bakka- og Seljaklúbbur tók að sér í vor að sjá um lundinn í Heiðmörk næstu tvö árin. Það var vaskur hópur klúbbsystra ásamt mökum sem tóku til hendinni þann 8. ágúst síðastliðinn. Lúpína og gras var slegið, hríslur grysjaðar ásamt því að nestisborðið var lagfært og málað.