Skip to main content
  • Sá litli á Breiðinni

  • Stjórn 2018-2019

  • Fjör á fundi

  • Langisandur

    ROÐAGYLLUM HEIMINN- BURTU MEÐ OFBELDI

    Soroptimistar á Akranesi og nágrenni hafa í ár tekið höndum saman með Soroptimistasystrum um land allt við að vekja athygli á mikilvægi þess að vinna markvisst að útrýmingu kynbundins ofbeldis.

    Nú stendur yfir 16 daga ákall Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þar sem ríki, stofnanir, samtök, fyrirtæki og einstaklingar eru hvött til að taka þátt í því að draga athygli almennings að þessari vá; þessum alvarlegu mannréttindabrotum.  Þetta er árvisst átak sem hefst 25. nóvember, degi sem Sameinuðu þjóðirnar völdu sem alþjóðlegan dag vitundarvakningar um ofbeldi gegn stúlkum og konum. Því lýkur á mannréttindadegi SÞ 10. desember, sem jafnframt er alþjóðlegur dagur Soroptimista.  

    Fuglafóður og 16days

     Táknlitur átaksins er appelsínugulur, litur vonar. Á ensku er slagorðið Orange the world eða Roðagyllum heiminn. Liturinn var valinn til að minna okkur á að eftir sólsetur rís sólin upp að nýju.  Það má því víða sjá roðagyllt hús, tanka og torg í tilefni þessa mikilvæga málefnis og ljósagöngur farnar í bæjum og borgum.

    Alþjóðasamband Soroptimista hefur allt frá árinu 1991 sett það á oddinn að berjast gegn því að stúkur og konur séu beittar ofbeldi og órétti. Sambandið hvetur til þess að ríkjasambönd Soroptimista, einstaka klúbbar og systur finni leiðir til að setja þessi mannréttindabrot í brennidepil í sínum samfélögum þessa 16 daga. Tengist þetta beint við fimmta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um leiðir til að stuðla að jafnrétti kynjanna, með því að staða allra kvenna og stúlkna verði styrkt. Þar segir m.a. : „Hvers kyns ofbeldi gagnvart konum og stúlkum á opinberum vettvangi sem og í einkalífi, þ.m.t. mansal, kynferðisleg misneyting og misneyting af öðru tagi, verði ekki liðin og regluverk sem styður við ofbeldi afnumið. Allir skaðlegir siðir, eins og barnahjónabönd, snemmbín og þvinguð hjónabönd og limlesting kynfæra kvenna og stúlkna, verði lagðir niður.“

    Svandís og fuglafóðursgerð         Lísa og fuglafóðurgerð

    Soroptimistaklúbbur Akraness hefur í ár hvatt stofnanir og fyrirtæki til að roðagylla byggingar til að vekja athygli á málstaðnum og skoða hvað annað þau gætu gert til að leggja málinu lið. Að þessu tilefni verður klúbburinn með roðagylltan markað laugardaginn 30. nóvember frá kl. 14:00-17:00. Markaðurinn verður í Galleríi Bjarna Þórs að Skólabraut 22, Akranesi. Ágóðinn rennur til Kvennaathvarfsins.

    Sigríður Kristín Gísladóttir
    Nóvember 2019